Skimun fyrir brjóstakrabbameini með brjóstamyndatöku

 

  • Hvaða gagn er að því að gangast undir skimun fyrir brjóstakrabbameini og hvaða eða skaðlegu afleiðingar getur skimun haft í för með sér?
  • Hversu margar konur hafa gagn af skimun og hversu margar bíða tjón?
  • Hvaða ályktanir má draga af vísindarannsóknum á þessu sviði?

Samantekt

Gild rök geta verið fyrir fyrir því að gangast undir skimun fyrir brjóstakrabbameini með brjóstamyndatöku, einnig getur verið skynsamlegt að láta það ógert. Skimun getur gert gagn, en getur einnig haft skaðlegar afleiðingar.

Konur ættu að kynna sér kosti og ókosti skimunar til að geta tekið upplýsta ákvörðun.

Ef 2000 konur gangast reglulega undir skimun á 10 ára tímabili mun ein þeirra hafa gagn af skimuninni, enda hefði hún ella dáið úr brjóstakrabbameini.

Jafnframt mun skimunin hafa þær afleiðingar að 10 frískar konur gangast undir meðferð sem krabbameinssjúklingar. Brjóst þeirra verður numið á brott í heild sinni eða að hluta, margar þeirra hljóta geislameðferð en sumar jafnframt meðferð með krabbameinslyfjum.

Að auki munu um 200 frískar konur þurfa að gangast undir frekari rannsóknir áður en þær eru úrskurðaðar frískar. Þær upplifa því óþarfa áhyggjur eða “falsk alarm” eins og sagt er á dönsku (enska: false alarm). Óvissan um hvort um krabbamein er að ræða eða ekki getur valdið verulegu tilfinningalegu álagi.